Gallar

Ef vara er gölluð þá mun Stuðlaberg heilbrigðistækni og Eirberg ehf. bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003 á Kaupandi (einstaklingur) rétt á því að fá gallaða vöru bætta ef tilkynning berst seljanda innan tveggja mánaða frá því að kaupandi varð var við galla.

Eirberg mælir með því að kaupandi sendi tilkynningu til Eirbergs á hjalp@eirberg.is eða komi á verkstæðið sem fyrst eftir að galli uppgötvast. Stuðlaberg heilbrigðistækni og Eirberg áskilja sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð innan 10 daga.

Athygli er vakin á því að ef varan reynist ekki gölluð eftir yfirferð þá ber kaupandi að greiða skoðunargjald samkvæmt verðskrá verkstæðis. Því er brýnt að kaupandi kynni sér vel leiðbeiningar sem fylgja vörunni og upplýsingar á eirberg.is og framleiðanda.

Réttur neytenda (einstaklingur utan atvinnustarfsemi) er í samræmi við neytendakaupalög nr. 48/2003. Frekari upplýsingar má finna á vef kærunefndar vöru- og þjónustukaupa - kvth.is

Ábyrgð

Ábyrgð vegna galla á vöru er í samræmi við lög um neytendakaup nr. 48/2003, gildir í tvö ár og miðast við dagsetningu kaupa til einstaklinga, neytandi getur þó borið fyrir sig galla í allt að 5 ár ef söluhlut sé ætlaður verulega lengri endingartími. Kaupandi (einstaklingur), sem nýtur neytendaábyrgðar, er sá aðili sem kaupir vöru til notkunar utan atvinnustarfsemi og kaupin eru ekki í atvinnuskyni eða í tengslum við starf notanda. Að öðrum kosti er ábyrgð á galla eitt ár frá kaupdagsetningu samkvæmt lögum um lausafjárkaup nr. 50/2000.

Skilyrði fyrir nýtingu ábyrgðarskilmála er framvísun kaupnótu.

Raftæki sem talin eru gölluð skal framvísa á verkstæði Eirbergs að Stórhöfða 25.

Í sumum tilfellum, t.d. þegar snjalltæki eða hugbúnað er að ræða, mun Eirberg vísa kaupanda beint á þjónustuvef framleiðanda.

Eirberg áskilur sér rétt til að sannreyna galla á vörum innan eðlilegra tímamarka.

Ef varan reynist ekki gölluð eftir yfirferð eða ekki er um að ræða ábyrgðaviðgerð greiðir kaupandi skoðunargjald samkvæmt verðskrá verkstæðis Eirbergs.

Ef vara fellur undir ábyrgð mun Eirberg bjóða, eftir atvikum, viðskiptavini upp á viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa.

Í öllum tilfellum er fyrst kannaðir möguleikar á viðgerð vöru.

Réttur neytenda (einstaklingur utan atvinnustarfsemi) er í samræmi við neytendakaupalög nr. 48/2003.

Takmarkanir

Ábyrgð og þjónusta er háð því að notkun á vöru hafi verið í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda.

Ábyrgð gildir ekki ef bilun verður sem rekja má til annarra orsaka en framleiðslugalla, svo sem rangrar meðferðar, notkunar á rekstrarvöru eða skort á viðhaldi.

Gildir ekki um eðlilegt slit vegna notkunar.

Gildir ekki ef búnaður hefur verið opnaður, þriðji aðili gert tilraun til viðgerða eða átt hefur verið við vöru á einhvern annan hátt en sem telst vera eðlileg notkun á vöru.

Gildir ekki um rafhlöður og aðrar slíkar rekstrarvöru sem eðlilegt getur verið að þurfi að endurnýja fyrir lok ábyrgðar.