Verkstæði og viðgerðir
Verkstæði að Stórhöfða 25
Verkstæði að Stórhöfða 25 er opið virka daga frá kl. 9:00 - 17:00. Gengið inn um aðalinngang að Stórhöfða 25 og niður í kjallara fyrir neðan verslun. Hægt er að senda fyrirspurn á hjalp@eirberg.is
Viðgerðir og afhending
Meðalviðgerðartími á Íslandi er 10‐15 virkir dagar. Viðgerðartími Eirbergs eru 10 virkir dagar (miðað við móttöku vöru á verkstæði) en eftir tilvikum getur viðgerð tekið allt að 20 virka daga.
Fyrirspurnir um vörur í viðgerð skulu berast á netfangið hjalp@eirberg.is, en aðeins ef liðnir eru 10 virkir dagar frá því að vara barst verkstæði.
Eirberg tekur ekki ábyrgð á gögnum tækja á geymslueiningum s.s. usb eða hörðum diskum.
Ef panta þarf varahluti eða viðgerð reynist umsvifameiri en áætlað var þá getur viðgerðartími lengst. Eirberg biður viðskiptavini að sýna skilning ef tafir verða.
Kaupanda er bent á að fara með vöruna beint á verkstæði Stuðlabergs heilbrigðistækni og Eirbergs ehf. að Stórhöfða 25. Gengið inn um aðalinngang að Stórhöfða 25 og niður í kjallara fyrir neðan verslun.
Að viðgerð lokinni fær kaupandi skilaboð.
Framvísa skal afhendingarseðli við afhendingu tækis.
Sækja skal vöru að viðgerð lokinni sem fyrst. Verkstæðið geymir vörur í hámark 3 mánuði eftir skoðun / viðgerð. Ósóttar vörur ganga upp í viðgerðarkostnað eða fargað.
Skoðunargjald og verðskrá
Ef skoðun á vöru heyrir ekki undir ábyrgðarskilmála og varan reynist vera í lagi þá er greitt skoðunargjald. Viðgerð á vöru sem er ekki í ábyrgð er samkvæmt tímagjaldi verkstæðis sem og tilfallandi kostnaður vegna varahluta.
Skoðunargjald: 4.950 kr.
Tímagjald verkstæðis: 17.500 kr.
Akstursgjald:
Lítill bíll: 5.950 kr.
Stór bíll: 11.750 kr.
Athugið að verð og tímagjöld geta breyst án fyrirvara. Verð eru með vsk.