Greiðsla

Greiðslu getur kaupandi innt af hendi á ýmsa vegu:

Kredit- eða debetkort: Greiðsla fer fram á sama tíma og kaupandi skráir kaup sín. Greiðsla með kreditkorti fer fram í gegnum örugga greiðslugátt sem kaupanda er beint sjálfkrafa til þegar hann fyllir út greiðsluupplýsingar. Þegar kaupandi staðfestir upplýsingarnar er greiðslan skuldfærð af kortinu. Einnig er hægt að nýta sér raðgreiðslur með kreditkorti.

Netgíró: Kaupandi samþykkir að nota þjónustu Netgíró. Einnig er hægt að nýta sér raðgreiðslur með Netgíró. Frekari upplýsingar um virkni þjónustunnar má finna á netgiro.is.

Verð

Vinsamlegast athugið að verð á vefsvæði Stuðlabergs heilbrigðistækni og Eirbergs ehf., einnig verð í auglýsingum, tilkynningum og bæklingum getur breyst án fyrirvara. Verð er með virðisaukaskatti og með fyrirvara um innsláttar- og kerfisvillur. Eirberg ehf. / Stuðlabergs heilbrigðistækni ehf. áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef að viðkomandi vara er uppseld eða af öðrum ástæðum. Þjónustufulltrúi mun upplýsa kaupanda um slíkt eins fljótt og kostur er og hugsanlega koma með tillögu að annarri vöru sem kaupanda gefst kostur á að samþykkja eða hafna.

Innskráning og pöntun

Við fyrstu innskráningu skráir kaupandi fullt nafn, kennitölu, heimilisfang og póstnetfang sitt og samþykkir að hann hafi lesið persónuverndarstefnu félagsins. Einnig getur kaupandi samþykkt að vera á póstlista og SMS lista Eirbergs eða Stuðlabergs. Pöntun kaupanda á vefversluninni er bindandi þegar hann hefur staðfest pöntun sína í kaupferlinu. Ef allt er með felldu, er pöntun kaupanda afgreidd og kaupanda send staðfesting á netfang hans. Jafnframt sendir Eirberg / Stuðlaberg kaupanda afrit af reikningi þegar greiðsla berst frá kaupanda eða greiðslumiðlun hans. Kaupanda er bent á að kynna sér vel staðfestingu á pöntun þegar hún berst og senda ábendingu ef vara hefur ekki borist honum í hendur eftir viku og engin skýring borist á töfum.

Eignarhald

Seldar vörur eru eign Stuðlabergs heilbrigðistækni ehf. / Eirbergs ehf. þar til kaupverð er greitt að fullu.