Afhending og sendingar
Sendingar úr vöruhúsi
Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf. og Eirberg ehf. bjóða kaupendum sínum að fá fría heimsendingu þegar verslað er í vefverslun fyrir a.m.k. 10.000 kr. og ef pöntun er innan við 20kg. að þyngd. - GILDIR AÐEINS UM VIÐSKIPTI SEM EIGA SÉR STAÐ Í VEFVERSLUN.
Vöruhús Stuðlabergs heilbrigðistækni og Eirbergs ehf. afgreiðir vefpantanir til heimsendingar. Í flestum tilvikum sér Íslandspóstur um flutning á smávörum til einstaklinga.
Þú getur einnig valið að sækja pöntunina í verslun Eirbergs. Tiltækir afhendingarmátar og verð birtast í greiðsluferlinu.
Afhending
Leitast er við að afgreiða vefpantanir næsta virka dag. Á álagstímum má þó gera ráð fyrir lengri afgreiðslufrests. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Pöntunum er almennt dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar flutningsaðila um afhendingu vörunnar. Tjón á vöru eftir afhendingu er á ábyrgð kaupanda.
Veldu heimsendingu eða afhendingu í verslun í greiðsluferlinu.
Yfirferð á vöru
Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að byrja á því að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestingu og reikning. Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar sem fylgja með vörunni.
Ef kaupandi telur að varan sé ekki í samræmi við vörulýsingu og eða vill hætta við kaup skal senda tilkynningu þess efnis á netfangið eirberg@eirberg.is / stb@stb.is eða hafa samband við þjónustuver sem mun svara ábendingu innan 14 daga. Einnig er hægt að fylla út staðlað uppsagnareyðublað sem fylgir reglugerð um upplýsingar um nýtingu réttar til að falla frá samningi. í reglugerð nr. 435/2016 og senda á netfangið eirberg@eirberg.is eða stb@stb.is.
Almennar pantanir
Kaupandi ber sendingarkostnað af vörukaupum sem ekki eru gerðar í gegnum vefverslun eirberg.is. Á þetta einnig við þegar kaupandi pantað vöruna símleiðis eða með því að senda pöntun á netfang Eirbergs. Öllu jafna rukkar flutningsaðili sendingargjald til kaupanda beint.
Þegar verslað er í vefverslun eirberg.is eða stb.is þá bjóðum við fría heimsendingu þegar verslað er í vefverslun fyrir 10.000 kr. eða meira ef sending er innan við 20 kg. að þyngd.