Skilaréttur vefverslunar er 365 dagar – ef verslað er á vef eirberg.is og stb.is

Kaupandi (einstaklingur) sem verslar á eirberg.is eða stb.is hefur 365 daga frá afhendingu til að hætta við kaupin. Samkvæmt 4. mgr. 22. gr. laga nr. 16/2016 ber neytandi ábyrgð fyrir rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af meðferð hennar, annarrar en þeirrar sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent kaupanda. Reikningskvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með vöruskilum. Endurgreiðsla er framkvæmd ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. ATHUGIÐ – GILDIR EINUNGIS EF VERSLAÐ ER Í VEFVERSLUN. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. EKKI ER HÆGT AÐ SKILA VÖRUM KEYPTUM Á ÚTSÖLU EÐA SAMBÆRILEGUM TILBOÐUM. Vinsamlegast hafið samband, ef spurningar vakna, við Eirberg ehf. / Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf. Netfangið er eirberg@eirberg.is / stb@stb.is og símanúmer 569-3100 / 569-3180. Að öðru leyti vísum við til laga nr.48/2003 um neytendakaup.

Skilaréttur í verslun Eirbergs á Stórhöfða og símapantana

Kaupandi (einstaklingur), sem verslað hefur í verslun Eirbergs á Stórhöfða 25, pantað vöruna símleiðis eða með því að senda pöntun á netfang Eirbergs , hefur 14 daga frá kaupdegi og / eða frá afhendingu til að skila vörum að því tilskildu að varan hafi ekkert verið notuð og í söluhæfum og upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Sýna þarf reikningskvittun fyrir vörukaupum við vöruskil. Við vöruskil fær kaupandi innleggsnótu að andvirði vörukaupa. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. EKKI ER HÆGT AÐ SKILA VÖRUM SEM KEYPTAR HAFA VERIÐ Á RÝMINGARSÖLU Þ.E.A.S. MEÐ 30% AFSLÆTTI EÐA HÆRRI. Að öðru leyti vísum við til laga nr.48/2003 um neytendakaup.

Yfirferð á vöru

Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að byrja á því að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestingu og reikning. Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar sem fylgja með vörunni.

Ef kaupandi telur að varan sé ekki í samræmi við vörulýsingu og eða vill hætta við kaup skal senda tilkynningu þess efnis á netfangið eirberg@eirberg.is / stb@stb.is eða hafa samband við þjónustuver sem mun svara ábendingu innan 14 daga. Einnig er hægt að fylla út staðlað uppsagnareyðublað sem fylgir reglugerð um upplýsingar um nýtingu réttar til að falla frá samningi. í reglugerð nr. 435/2016 og senda á netfangið eirberg@eirberg.is eða stb@stb.is.