Almenn ákvæði – Samningur

Skilmálar þessir eru samningur um kaup á vöru eða þjónustu í vefverslun Stuðlabergs heilbrigðistækni ehf. og Eirbergs ehf. og í öðrum verslunum. Skilgreina réttindi og skyldur Stuðlabergs heilbrigðistækni og Eirbergs ehf. annars vegar og kaupanda vöru eða þjónustu hins vegar.

Hafi skilmálar þessir ekki verið samþykktir af kaupanda við nýskráningu á vefsíðu Eirbergs ehf., eirberg.is eða Stuðlabergs heilbrigðistækni ehf., stb.is teljast þeir samþykktir við fyrstu kaup á vöru eða þjónustu og staðfestir kaupandi þar með að hann þekki gildandi skilmála vefverslunar.

Eirberg ehf. / Stuðlabergs heilbrigðistækni ehf. áskilja sér rétt til að hætta við pantanir. Einnig er áskilinn réttur til að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Stundum getur þurft að staðfesta pantanir símleiðis.

Verð

Vinsamlegast athugið að verð á vefsvæði Stuðlabergs heilbrigðistækni og Eirbergs ehf., einnig verð í auglýsingum, tilkynningum og bæklingum getur breyst án fyrirvara. Verð er með virðisaukaskatti og með fyrirvara um innsláttar- og kerfisvillur. Eirberg ehf. / Stuðlabergs heilbrigðistækni ehf. áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef að viðkomandi vara er uppseld eða af öðrum ástæðum. Þjónustufulltrúi mun upplýsa kaupanda um slíkt eins fljótt og kostur er og hugsanlega koma með tillögu að annarri vöru sem kaupanda gefst kostur á að samþykkja eða hafna.

Persónuupplýsingar

Á eirberg.is og stb.is er aðgengileg persónuverndarstefna félagsins. Í þessari persónuverndaryfirlýsingu kemur fram hvernig Stuðlaberg heilbrigðistækni og Eirberg ehf. umgengst þær persónuupplýsingar um kaupanda sem geymdar eru og hvaða réttindi hann á varðandi upplýsingarnar.

Aðgangur

Kaupandi hefur leyfi til að nota vefinn eirberg.is / stb.is og þá þjónustu sem þar er boðið upp á í samræmi við skilmála þessa og þær aðgangstakmarkanir sem Eirberg ehf. / Stuðlabergs heilbrigðistækni ehf. setur. Hafi skilmálar þessir ekki verið samþykktir af kaupanda við nýskráningu á vefsíðu Eirbergs og Stuðlabergs , teljast þeir samþykktir við fyrstu kaup.

Óheimilt er með öllu að falsa nafn og persónuupplýsingar við skráningu inn á eirberg.is / stb.is. Verði kaupandi uppvís að að slíku og öðru sviksamlegu athæfi við kaup á vefnum áskilur Eirberg og Stuðlaberg sér rétt til að vinna náið með lögreglu við úrlausn slíkra mála, þ.m.t. að veita henni þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru í slíkum tilvikum. Stuðlaberg heilbrigðistækni og Eirberg ehf. áskilur sér rétt til að loka fyrir aðgang að eirberg.is / stb.is ef grunur leikur á sviksamlegu athæfi.

Innskráning og pöntun

Við fyrstu innskráningu skráir kaupandi fullt nafn, kennitölu, heimilisfang og póstnetfang sitt og samþykkir að hann hafi lesið persónuverndarstefnu félagsins. Einnig getur kaupandi samþykkt að vera á póstlista og SMS lista Eirbergs eða Stuðlabergs. Pöntun kaupanda á vefversluninni er bindandi þegar hann hefur staðfest pöntun sína í kaupferlinu. Ef allt er með felldu, er pöntun kaupanda afgreidd og kaupanda send staðfesting á netfang hans. Jafnframt sendir Eirberg / Stuðlaberg kaupanda afrit af reikningi þegar greiðsla berst frá kaupanda eða greiðslumiðlun hans. Kaupanda er bent á að kynna sér vel staðfestingu á pöntun þegar hún berst og senda ábendingu ef vara hefur ekki borist honum í hendur eftir viku og engin skýring borist á töfum.

Annað

Stuðlaberg heilbrigðistækni og Eirberg ehf. áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum þessara skilmála, enda verði kaupanda tilkynnt um það. Útsending nýrra skilmála til kaupanda og/eða birting á vefsíðunni eirberg.is telst nægileg tilkynning. Litið er svo á að kaupandi hafi samþykkt breytinguna ef hann kaupir vöru eða þjónustu eftir að tilkynning um breytingu hefur verið gefin út.

Ágreiningur

Rísi ágreiningur milli aðila um efni þessara viðskiptaskilmála eða vegna brota á þeim, skulu aðilar reyna að ná sáttum, annars skal bera viðkomandi mál undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu eða sambærilega stofnun. Ef framangreint þrýtur, er heimilt að reka mál vegna þessa fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Gildistími

Skilmálar þessir gilda frá 1. júní. 2019.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.